28mars
Ætlaði bara að láta vita af því ef það er einhver sem kíkir inn á þessa síðu enþá! þá er ég (Adda) komin með mína eign síðu........Ekkert illa meint stelpur mínar en þessi síða er bara eingan veginn að virka! ......
Allavega endilega kíkið á
www.addath.bloggar.is
02mars
Hmmm..........
Ekkert að gerast hérna!?!?!!!!
Stelpur!!! Eruð þið á lífi einhverstaðar hérna?????
Eða bara ekki að nenna þessu ?????
Látið nú heyra eitthvað í ykkur.........
Ooog Kommenta svo Takk!!!
kv. Adda
23febrúar
Jæja! nú held ég að mín sé komin með nett ógeð af þessu fitness dæmi! Alla vikuna og alla þar síðurstu viku er ég ekki búin að hugsa um annað nema góðan mat og nammi!! þar sem eina sem ég lifi á þessa dagana er Hafragrautur, hreint skyr, fiskur, kjúklingur, egg, ávextir og Cheerios! Er svona farin að langa í eitthvað annað! Eeen það erum bara 43 dagar í viðbót svo ég ætla ekki alveg að fara gefast upp! þótt mig virkilega langi til þess í augnablikinu! Myndi bara aldrei fyrirgefa sjálfri mér það ef svo myndi fara!
En svo er ég núna búin að vera bara ein heima í viku þar sem fjölskyldan ákvað að skreppa til Austuríkis í viku á skíði og það var ekkert verið að bjóða manni með! og var ástæðan sú að ég kæmi hvort sem er aldrei með þeim á skíði hérna á klakanum! enda kannski alveg rétt! En allavega þá er ég farin að sakna þeirra og finnst bara hálf einmannalegt hérna heima :(
En jæja læt þetta gott heita í bili! ætla bara að vera róleg í kvöld, þar sem planið er að reyna að mæta tvisvar á æfingu á morgunn, það er að segja ef ég kem mér upp úr rúminu í fyrramálið til þess að taka smá brennslu æfingu og lyfta svo seinni partinn
þannig bið að heilsa öllum og endilega kvittið hérna fyrir innlitið! væri ágætt að fá að vita hverjir eru að lesa hérna bullið í manni eða okkur skvízunum!
kv. Adda ;)
22febrúar
Skil ykkur ekki kellingarnar, alltaf að tuða í mér að blogga og svo bloggið þið ekkert???
Any way...... Þá var villimannasamkoman snildin eina fyrir norðan síðustu helgi

Ég var náttúrulega Borgfirskum villimönnum til fyrirmyndar en norðanmenn létu gamminn geysa þarna í íþróttahúsinu á Sauðarkrók...... Sumir enduðu bara algerlega á kúpunni og í nöldrinu og svona, en ég náttúrulega sýndi þessum frumbyggjum hvernig átti að dansa og skemmta sér

En ég nenni eiginlega ekkert að ræða þetta hér á opinberri grund þar sem fáir þekkja til mín eða minna(þar sem aðrir sveitungar mínir og vandamenn eru ekkert með veraldarvefinn).
But check this out:
http://www.youtube.com/watch?v=dMH0bHeiRNg
13febrúar
Góða kvöldið góðir lesendur

Nú hefur sveitalarfurinn sjálfur fengið tæknina til að vinna með sér en ekki á móti svo að ég er í hálfgerðu
tæknisjokki (of miklar tækniframfarir fyrir mig á einum degi)

En nóg um það enda eru án efa fáir sem þekkja mig eða vita e-ð um mig sem lesa þessa síðu.....
Bústaðarferðin góða dregur stóran dilk á eftir sér en þá, því einhverra hluta vegna endaði skrifarinn frekar
fáklæddur þegar líða fór á skemmtunina og vaknaði svo daginn eftir með all marga áverka (sem ku vera eftir einhverskonar
víkingaátök um nóttina) en ég minnist einskis

.... Ég vill kenna almennum drykkjuskap um þessi athæfi enda hafði daman ekki komist í slíkan
mannfögnuð eða
veigar í all langan tíma sökum tímaleysis...... Til að koma í veg fyrir svona gjörðir aftur hefur daman ákveðið að skella sér reglulegar út á meðal fólks og áfengis, einmitt ætlar hún að brunar norður yfir heiðar og skella sér á heiðið blót og fórnir með frumbyggjum Skagafjarðar næst komandi laugardag. En þar ku daman passa vel inn í með
drykkjuskap og
dólglætin sem fylgja henni.
En ef ég fari nú yfir liðna daga frá síðasta mannfögnuði þá hef ég bara einu sinni komist til að hitta sálufélaga minn í klaufaskap, en það var mjög gott fórum að pumpa kellingarnar eða veit ekki hver tilgangur öddu var, en henni var blótað daginn eftir.... Eftir þau átök húkkuðum við far upp í smárabíó og kíktum á sýrða mynd svona í tilefni þessa að þorrinn stendur yfir.....
(húmor fyrir sveitamenn sem kíkja á þessa síðu, ég vænti þess ekki af borgarbörnunum að þau skilji þetta....) Þetta var hið ágætasta menningarsjokk fyrir kellu því hún hefur ekki komið til borg óttans síðan þá! En aftur á móti brunaði ég, svona til að hita upp fyrir næstkomandi helgi, norður á krókinn síðustu helgi en það var frekar fúlt þar sem stelpan var rúmliggjandi allan tíman með 39 stiga hita

og er ég en í rúminu. Vill meina að þetta sé almenn fyrirtíðarspenna fyrir blótið þar sem ég hef aldrei komið saman með svo mörgum villimönnum(mínum líkum)!! Þetta verður eins og fyrir
Tarzan þegar hann fer og hittir mannfólkið....
Þetta eru nógar skriftir í bili, over and out.
Frú Sóley
06febrúar
Jæja, er það ekki kominn tími til að ég fari að blogga!
Bústaðarferðin okkar var stutt jújú, en hún var geggjuð! Það voru allir þvílíkt ánægðir og áfengið flæddi oní alla! Einnig var sumum byrlað Viagra, en Gauja, Bjarna og Guðna fannst það rosa sniðugt að taka með sér. En já, ég var mikið meira en full, skil bara ekki hvernig ég gat ekki hafa dáið, reyndar veit ég það alveg, en samt! hehe.. Ég meiddist líka frekar illa.. týpískt ég! Var að fara í bústaðinn við hliðiná að heilsa uppá Arnar Helga og aðra MK-inga en til þess að komast í bústaðinn þurfti marr að labba yfir svell! Og ég lét mig hafa það og byrjaði að labba en auðvitað rann og meiddi mig. Hægri hnéskelin mín var tvöföld vegna bólgu. Samt sem áður hélt ég ferðinni áfram í bústaðinn og heilsaði uppá liðið 
Laugardaginn eftir fórum við í bæjinn um 8 leitið um kvöldið. Ég endaði með því að fara á djammið seinna um kvöldið með Lady Like gellunum og einnig með Rebekku og Erlu
Mér fannst það allavega algjör snilld, en ég var edrú! meikaði ekki meira áfengi þessa helgi..
Svo núna í vikunni er ég ekkert búin að geta æft því bæði var ég meidd í fætinum og svo náði ég að meiða mig í öxlinni. Held ég hafi tognað í vinstri vöðvafestunni
sem var fokk vont! Þannig að ég er bara búin að vera að chilla núna varðandi ræktina.
Laugardagurinn var algjör SNILLD!!!!... eða það sem ég man af því kvöldi.. hehe. Var að vinna, frekar brjálað að gera, en tíminn leið hratt og við vorum fljótt búnar. Svo fór ég heim að gera mig til fyrir kvöldið, smá sjæning time
Adda hringdi síðan og sagði mér að hún væri komin til Rósa, sem er nýji kallinn hennar, og að ég ætti að drífa mig strax til þeirra. Þar voru nokkrir vinir hans og auðvitað Adda mín. Svo seinna komu Kata og e-r vinkonur hennar. Og já.. hehe þar drakk ég frekar mikið.. var sko með mér 1500ml af rósavíni sem ég kláraði á nkl. 50 mín. :-S hehehe En ef þið viljið vita meira um það kvöld, talið þá við Öddu.. hún var edrú, ég man ekki rassgat!
Á sunnudaginn vaknaði ég heima hjá Óskari frekar þunn og þreytt. Þá hafði ég víst drepist í bílnum hjá honum á leiðinni heim.. hehehe.. Þessi dagur fór aðallega í það að ná mér eftir laugardagskvöldið.
Svo núna er þriðjudagskvöld komið og ég er bara að slappa af því það er ENGINN SKÓLI á morgun!! :-D
En já, þetta er gott í bili held ég : ) ef þið viljið sjá myndir þá eru e-ar á www.superman.is .. við vorum sko alveg að meikaða hjá Sveinba!
Later, Maren kjánii!
30janúar
Úff hvað ég er komin í Feita drykkjupásuu enda kannski hef ég ekkert annað val ef ég ætla norður að keppa um páskana! En allavega þá er þessi blessaða sumarbústaðarferð afstaðin! og held ég að sú ferð verði ógleymarleg! Bara Alltof mikið fyllerí! Drama! Meiðsli! Skemmtun og Vitleyza! Enda var brunað í bæinn á laugard. kvöldin, flestir bara komnir með nóg eða að minnasta kosti ég! Þótt það hefði nú verið drullu gaman þarna, en ein nótt nægði mér (allt er gott í hófi).
Annars er bara allt það besta að frétt af mér. Skólinn komin á fullt og svo er það bara vinnan og æfingar........gaman gaman!
Svo er mér farið að hlakka pínu til helgarinnar þar sem Árshátið hreyfingar og Bláalónsins verður haldin og á víst að vera eitthvað kvikmyndaþema, þannig allir eiga að mæta í einhverskonar búningi! Og svo beint eftir árshátíðina verður haldið á Nasa og djamma eitthvað meira þar! 
Já og Sóley mín hvernig væri það nú að fara að tengjast eitthvað umheiminum! það þýðir ekkert að búa bara út í sveit og þykkjast vera látin!! Anyway....Gaman að fá þig í bústðinn og geta líka loksinns kíkt í heimsókn til þín í sveitina! og láttu svo heyra eitthvað í þér hérna á síðunni þar sem ég er búin að troða þér hérna inn ;o) Luv u :o*
Og Kata og Guðný! Ekkert smá gaman að fá ykkur líka þarna, alltaf jafn gaman að djamma með ykkur! þið eruð allgjört æði!! 
.......Svo var ég að fá mér Kött! Fiiiinnst ykkur hann ekki sætur!?!?

kv. Adda 
22janúar
Helgin bara búin og komin mánudagur! Ohhh! ....... En allvega þá var helgin bara fín. Á föstudeginum þá vorum við bara að vinna. og eftir vinnu fór ég bara heim að sofa, þar sem ég þurfti að vakana í aðra vinnu morguninn eftir. En hún Maren mín skellti sér á Pravda ásamt MK-stelpunum.
Laugardagurinn þá var það bara vinna-æfing-vinna-djamm! En við vorum búnar að ákveða að kíkja á Playboy kvöldið á Nasa seinna um kvöldið en einhvernveginn fór það allt í buskann og við enduðum á að fara á Pravda! Ég auðvitða edrú en Maren ákvað að fá sér nokkra bjóra!
....... Svo eftir nokkur vatnsglös og fjóra fría óáfenga kokteila þá var bara haldið heim í lúllið!
Sunnudagurinn þá vorum við mættar á æfingu um hálf tvö leytið! Svo á leiðinni heim kipptum við með okkur tveimur video spólum. Svo elduðum við okkur eða Maren eldaði og ég horfði á þar sem ég kann ekki að elda neitt nema skemma það liggur við! En hún eldaði handa okkur geðveikt góðann kjúklingarétt
......Eftir það var haldið heim til mín, klápt á video og svo farið að sofa.
En Næsta helgi stefnir allt í heljarinnar djamm og fyllerí þar sem þá verður farið í sumarbústað og get ég varla beðið eftir að þessi vika klárist!
Svo var að bætast inn hérna einn annar Kjáni! Hún Sóley okkar!..... Gaman að fá þig í hópinn elskan!!
en ég er hætt þessu bulli í bili
kv.Adda

18janúar
Núna eru allir búnir að borga og ég búin að borga Eflingu leiguna! Það er takmörkuð rúm, aðeins fyrir 8 manns, en við erum 10 þannig að ef einhver á dýnu þá endilega taka hana með! Ef einhverjir fleiri vilja joina þá talið bara við okkur Öddu. Það kostar samt 1000 kall á manninn, þótt það sé aðeins fyrir eina nótt! Þýðir ekki að láta okkur borga og mæta svo frítt!
En já, við höfum bústaðinn 26.-29. jan, þannig að við þurfum ekkert að vera að stressa okkur á sunnudeginum með að skila lyklum! Það þurfa allir að taka með sér sængurver!! það er algjört mössst! :-Þ
Bústaðurinn er í Svignarskarði sem er um 15-20 mín frá Borganesi (maður keyrir í gegnum Borganes). Ef þið eruð komin að Baulunni þá eruð þið komin of langt, búin að keyra fram hjá! Þetta er víst merkt en ef þið viljið frekari upplýsingar um staðsetningu bústaðarins hafið þá samband við Eflingu, 510 7500.
Það er heitur pottur þannig allir koma með skýlur og bikiní!!
Þið getið lesið ykkur til um allt hér:
http://efling.is/orlofssjodur/sumarhus/svignaskard%5Fborgarfirdi%5F%2D%5Fstaerri%5Fhus/Allavega, ef þið hafið einhverjar spurningar hafið þá samband við mig og Öddu!
Kv. Maren
Lag dagsins í dag: Dirty Cash (Dirty South Club Mix) - Mind Electric
17janúar
Jæja, þið sem ætlið með okkur í sumarbústaðinn verðið að leggja inn á mig 1000 kall Í DAG!!! Ég þarf að borga þetta á morgun en ef peningurinn verður ekki kominn fyrir hádegi á morgun þá verður engin ferð!!!!!
Drífið ykkur nú að þessu!
Reikningsnúmer: 0130-26-010888
Kennitala: 3108883119
1000 kall á mann!!!
Kv. Maren